mánudagur, febrúar 28, 2005

Tad hlaut ad koma ad tvi!

Jeg eyddi helginni i litlum strandbae. Eyddi i alvorunni heilum degi i sjonum. A klukkutima og ta er jeg ad meina klukkutima, fekk jeg yfir fimmtiu moskitubit (reyndar ekki a medan jeg var i sjonum)! Tar ad auki er jeg med otrulega fallegan marblett a staerd vid Damorku a laerinu (tokst a einhvern otrulega klaufalegan hatt ad detta nidur stigann hjerna heima). Tannig ad mjer fannst jeg alveg otrulega kyntokkafull a strondinni. Serstaklega eftir ad jeg solbrann. Doppott nedst, fjolubla og flekkott i midjunni og rondott efst. Virkilega adladandi.

Jeg er buin ad setja inn fyrstu myndirnar. Taer voru hatt i hundrad i vidbot.. helmingurinn af myndunum i Koben (adallega fra arshatid Laekjarbrekku og turistadegi okkar Karolar) og fyrstu myndirnar fra Brasiliu eyddust ut af velinni. En tetta er eitthvad, engin storvirki, en vonandi skemmtilegt ad skoda. Voila..

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Legal!

Tegar madur er farinn ad segja leigubilstjorum til vegar i Rio De Janeiro, ta er madur ekki lengir turisti. Ta er madur ordinn carioca (sem tyir Rio De Janeiro-bui).

Og ef einhverjum vantar vegaleidbeiningar um Rio ta er simanumer mitt +55 21 9131 3605.

sunnudagur, febrúar 20, 2005

Ef kjotkvedjuhatid og fleiru...

Jeg er buin ad vera i Brasiliu i taepan manud. Og jeg er ennta hvit sem snjor. Reyndar er jeg orlitid minna hvitari en jeg var tegar jeg kom. Bjossi sagdi ad vid hlidina a brasiliubuum vaeri jeg eins og onnur dyrategund, sem er vaentanlega rett. Timanum hefur lika almennt verid varid i annad en ad liggja i solbadi.

I Paraty skodudum vid strond sem er sogd vera ein fallegasta strond Brasiliu. Vid roltum i gegnum frumskog, syntum i fossi og renndum okkur nidur kletta sem eru nokkurs konar vatnsrennibraut af natturunnar hendi. Og ta var haldid aftur til Rio enda carnivalid i tann mund ad hefjast. Carnivalid er stanslaust party, baedi fyrir og eftir adaldagana. Sums stadar i Brasiliu getur carnivalid jafnvel verid 2 manada stanslaust party. Vid leigdum ibud a Ipanema, sotrudum bjor, mojito, capirinha og cubalibre, forum a strondina, donsudum til lokunar og heldum ta nidur a strond til tess ad dansa meira. Folk dansar a gotum uti og i Rio rikir almenn hamingja. A sunnudaginn forum vid ad sja skrudgonguna. Skrudgangan er keppni milli sambaskolanna i Rio. Undirbuningurinn tekur oftast heilt ar. A hverju ari fara domarar a milli skola og velja hvada skolar fa ad taka tatt i skrudgongunni. Hver skoli tarf svo ad semja sitt eigid lag, velja tema og vinna svo ut fra tvi. I hverjum skola eru a milli 2000-5000 manns og tad getur tekid allt ad 3 tima fyrir hvern skola ad marsera nidur Sambodrome, sem er gata, serstaklega byggd fyrir carnivalid. Skrudgangan byrjar um attaleytid og sidasti skolinn klarar oftast rett eftir solaruppras. Carnivalid er virkilega magnad. Og nu get jeg sagt "Jeg var her."
Adur en vid forum fra Rio heldum vid upp a Corcovado til ad skoda utsynid og Kriststyttuna. Tar vorum vid, sem og allir adrir turistar sem voru i Rio.

Eftir Rio heldum vid med rutu i 26 tima til Foz Do Iguacu, sem eru fossar a landamaerum Argentinu, Brasiliu og Paraguay. Tad er haegt ad skoda fossana fra allnokkrum hlidum en vid forum yfir til Argentinu og skodudum ta tadan. Fossarnir voru virkilega magnadir og vid misstum okkur i ad mynda ta ur ollum attum. Eftir Foz Do Iguacu og 18 tima rutuferd komum vid til Sao Paulo. Vid gistum i litlum strandbae, Guaruja, rett fyrir utan Sao Paulo. Vid gistum hja straki sem heitir Gustavo. Lifinu var tekid frekar rolega. A daginn rolt nidur a strond eda legid i sundlauginni og a kvoldin sotrad og ol og haft tad huggulegt. Husid sem vid gistum i var frakr merkilegt. Onnur hlidin virdist med timanum hafa sigid, svo ad allt husid hallar. Madur verdur virkilega sjoveikur ad tvi ad rolta of mikid um.

Strakarnir foru til Argentinu, enda er kjotid vist odyrara og stelpurnar fleiri en i Brasiliu. Jeg for hins vegar til Sao Paulo til ad hitta vinkonu mina. Hun er af upper middle class i Brasiliu. Fjolskyldan a fjora nyja bila og ternan teirra svara bjollu. Og kaerasti vinkonu minnar byr i tryllasta husi sem jeg hef sjed. Enda bua lika bara bankastjorar og kvikmyndastjornur i husinu hans. Og enn og aftur hafdi jeg tad huggulegt daginn ut og inn. Einn daginn for jeg t.d. tvisvar i bio og annan daginn for jeg a CISV fund (fyrir ta sem vita hvad tad er) og hitti 6 manss sem jeg tekkti! Litill heimur.

En nu er jeg komin aftur til Rio. Jeg verd hjer naestu tvo manudi. Og tar sem tessi postur er ordin akaflega langur ta skal jeg segja seinna fra ollu sem jeg er ad gera i Rio. Tangad til aetla jeg ad reyna ad setja myndir inna myndasiduna.

Um Beijo!

föstudagur, janúar 28, 2005

Brasilia, Brasilia...

Strakarnir voru svo gott sem gagnsaeir af tynnku tegar jeg vakti ta a manudaginn. Tad var gott mal, enda atti Yngvi afmaeli. Vid maelum med Duka´s a Ipanema. Tar fast frekar trylltir hamborgarar (sem eru godir gegn tynnku), svona nokkurskonar samblanda af Hlolla og Nonna. Vid forum ad laera ad surfa a Ipanema. Oll nema Siggi, hann vildi tjilla. En tad er gedveikt ad surfa og brettin hjerna kosta svo gott sem ekki neitt (og reyndar flest allt annad lika), tannig ad jeg er alvarlega ad hugsa um ad fjarfesta mjer i einu bretti. Svo er tad bara riding the waves at Ipanema.

Tad rignir og ringir i Brasiliu. Menn segja vist ad sidustu tvo daga hafi ringt meira i Sao Paulo en sidustu fimm ar. En tad er bara skemmtilegt. Um daginn od jeg t.d. litla a upp ad mjodum. Vid erum enn ekki viss hvort ad ainn hafi verid rigningarvatn eda skolp. Jeg segi riningarvatn. Jeg hefdi reyndar getad sleppt tvi ad vada anna og labbad i gegnum baeinn, en jeg tad fjekk jeg ad vita seinna.. Jeg hef reynt allt sem jeg get til ad tala portugolsku. Tad gegnur misvel. Oftast er jeg agaetlega skiljanleg en nuna rjett adan eyddi jeg 10 min. a tvottahusi i ad reyna ad utskyra fyrir konu ad jeg vildi ekki nota mykingarefni. Tad gekk ad lokum en var vist ansi skrautlegt samtal. Tad samanstod t.d. af mjer ad nudda mjer upp vid handklaedi til at utskyra mjukt.


Tad tilkynnist hjer med ad Angra Do Reis er einn mesti krummaskurdur i Brasiliu. Brasiliumenninrir segja ad hann sje svo litill ad tad sje varla "worth mentinoning". Ibuafjoldinn er naestum jafn mikill og i Reykjavik. En tar gistum vid eina nott, engum vard meint af en flestir gretu. Ilha Grande er litil paradisareyja sem vid hofum verid a sidustu trjar naetur. Tad var sol fyrsta dagin og jeg get svo svarid tad, jeg hjelt ad svona vaeri bara til a postkortunum. Tad eru engir bilar a eyjunni, rafmagnid fer stundum af i viku, strendurnar eru hvitar og eru eitthvad um 102 a allri eyjunni (mostkitoflugurnar eru e.t.v. eitthvad um 1.111,111,102), palmatrje og kokshnetur, fotspor i sandinum sem hverfa med sjonum o.s.frv. En Ilha Grande var yndsileg, tratt fyrir rigninguna. Afslappelsi, baekur, bjor, Capirinha, crepes og hamingja i hamarki.
Strakarnir eru ad hugsa um ad selja mig. Tad er blamadur a Ilha Grande sem hefur ahuga a ad kaupa mig. Vid vorum a bar i midbaenum eitt kvoldid tegar rigningin byrjadi og rafmagninu slo ut. Til ad ganga i augun a mjer dro blamadurinn upp svaka vasaljos med tremur mismunandi stillingum. Yngvi heldur ad tad sje alika toff og ad eiga Porsche a Islandi (tvi fyrst ad rafmagnid slaer reglulega ut, ta er vasaljos alveg nausynlegt). Tad ber to ad taka tad fram ad blamadurinn var svo massadur ad engin strakana tordi ad tykjast vera kaerastinn minn. Teir voru allir hraeddir um ad blamadurinn myndi lemja ta..

Jeg er buin ad hlaegja svo mikid sidustu daga ad jeg er virkilega med hardsperrur i kinnunum (eda einhverjum brosvodvum). Venjulega er jeg targetid i djokunum en Siggi a hvern gullmolann a eftir odrum. Tad er reyndar frekar merkilegt ad tegar bjorinn er ordin fleiri en einn virdist hann a einhvern undraverdan hatt geta talad hvada tungumal sem er. Og adan attadi hann sig a tvi ad vid vaerum a sudurhvelinu og vid eyddum dagodum tima i ad sturta nidur klosettinu og horfa a hringiduna ganga i ofugan hring vid tad sem hun gerir a nordurhveli jardar. En hjer eru nokkur daemi um gullmolana.

Siggi:¨Nei, jeg er ekkert hraeddur um ad vera raendur. Jeg meina, ef jeg er raendur, ta rennur tetta bara allt i gott malefni


Ragnheidur: Sjitt, jeg er svo brunnin
Siggi: Nei tu ert ekkert brunnin, tetta er bara brunka i motun.


Siggi: You can´t say that it´s a party where nobody is drinking, that´s just a get together.

Nuna erum vid i bae sem heitir Paraty. Vid erum reyndar bara nykomin. Tad eina sem vid hofum gert er ad borda, fara med fotin okkar i tvott og finna internet. Og verda blaut i rigningunni.

Lifid er virkilega yndislegt. Setning sidustu daga hefur vaentanlega verid "tetta er lifid". Og jeg held ad tad sje satt, tetta er virkilega lifid..

laugardagur, janúar 22, 2005

Hjer er allt storfenglegt. Jeg get litid annad sagt. Jeg er reyndar eins og gangandi endurskinsmerki i solinni, en tad breytist vonandi fljotlega med tidari heimsoknum a Ipanema og Copacabana.

Tessa helgi gisti jeg i husinu sem jeg verd i tegar jeg bryja i sjalfbodalidastarfinu. Tad er i ortulega fallegu hverfi sem heitir Santa Tereaza og ut um gluggan sje jeg eitt fraegasta fjall Brasiliu (sem jeg man ekki nuna hvort heitir Sugarcane eda Sugarloaf eda eitthvad annad Sugar..), sjoinn og Jesustyttuna gnaefa yfir ollu. Husid er a fjorum haedum og efsta haedinn er tak med heitum potti, gufubadi og sofum. Fyrir utan herbergid mitt eru svo rosasvalir og hengirum sem haegt er ad liggja i og lesa. Tegar jeg kem aftur fer jeg svo ad vinna i favelu tarna rett hja (ja tu last rett, i favelu...)

Nuna var jeg ad koma ur vaxi og jeg get svo svarid tad, jeg hjelt af konan myndi lika taka af mjer augnharin og jeg myndi koma harlaus ut. En tad gerdist ekki og fyrir tetta borgadi jeg rett taepar 450 isl. kr. a dyrri snyrtistofu.

A morgun fer jeg svo og hitti strakana. Vid aetlum a fotboltaleik og svo aetlum vid a litla paradisareyju hjer fyrir utan..

Tangad til.. Ate Logo!
Ég er i Rio De Janeiro..

SMS blog sent by Ragga Plögg
Powered by Hex Blogphone

fimmtudagur, janúar 20, 2005

Ég er i Paris..

SMS blog sent by Ragga Plögg
Powered by Hex Blogphone
Ég er i Kaupmannahöfn..

SMS blog sent by Ragga Plögg
Powered by Hex Blogphone
Ég er i London..

SMS blog sent by Ragga Plögg
Powered by Hex Blogphone

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Nokkrir punktar fra kongens København

- Sidasta fostudagskvold var kikt a barina. Jeg tel ad tetta kvold hafi verid eitt tad skemmtilegasta sem jeg hef upplifad. Toppurinn var to vafalaust tegar jeg attadi mig a tvi ad jeg hafdi ovart hent simanum minum i ruslid a McDonalds og reyndi ad stela hjoli tel tess a saekja hann. Morgnuninn eftir fattadi jeg ad jeg hafdi tynt veskinu minu i aesingnum. Allt fannst to aftur (siminn var mjog finn, allur ut i tomatsosu, fronskum og koki) og jeg vona ad tetta verdi tad versta sem jeg lendi i a tessari ferd minni

- Arshatid Laekjarbrekku var frabaer. Han var haldin a einhverjum uppastad i Danmorku sem heitir Ketchup og skilst mjer a Købinhafnarbúum ad m.a. Britney Spears hafi leigt stadin tegar hun kom. Samstarfsfolk mitt var duglegt vid ad syna Donum hvernig a ad skemmta sjer

- Nu hef tad tad dejligt hja Krolu minni. Hun er ekta Dani med hjol og afskaplega sød.

- Adur en jeg for klaradi jeg inneiginina med tvi ad senda ollum sem jeg gat sms. Ef einhver fjekk ekki svoleidis (og ta sjerstaklega sms med stafsetningarvillu) en vill fa postkort fra Brasiliu, ta er sa hinn sami bedinn um ad skilja eftir nafn og heimilisfang i kommentum

Bless

föstudagur, janúar 14, 2005

Elsku vinir!

Bless


Ugla, þú mátt gjarnan sækja flíspeysu og sólgleraugu sem þú átt hérna. Og sá sem gleymdi svörtum buxum, svörtum skóm og hvítri skyrtu (mjög liklega kórfötum) getur nálgast það á heimili mínu.

mánudagur, janúar 10, 2005

Ég held að við séum að snúa aftur til 1900 og eitthvað. Í dag sá ég hafís. Sjórinn var bara að frjósa.

Það verður að segjast eins og er að mér finnst það frekar undarleg tilfinning að standa uppdúðuð innan um risasnjóskafla í skítakulda alveg viss um að tærnar sé dottnar af vegna frosts og hugsa svo til þess að innan skamms muni ég standa á bikini einu fata á strönd í Brasilíu að bráðna úr hita.

Það er frekar góð tilhugsun...

föstudagur, janúar 07, 2005

Dánarfregnir og jarðarfarir

Það er opinbert. Bíllinn minn er dáinn (Eins mínútna þögn).

Eftir dygga og góða þjónustu hefur litla rauða Micran mín látist af slysförum. Það er svo sem fáránlegt að syrgja bíl, en Micran mín var miklu meira. Hún var vörubíll í microformi, hún var langferðabíll í dulargervi ömmubíls, hún var holl húsbónda sínum og hafa ófáir vinir, kunnungjar og ókunnugir fengið að ferðast með henni um landið vítt og breitt. Ég fullyrði að 93% allra kórmeðlima hafa einhvertíman fengið að sitja a.m.k. eina salíbunu í Micrunni. Um páskana var Micran fyllt af 250 búntum af páksaliljum og fór það henni vel. Hún var mitt annað heimili. Bíllinn minn og ég, við vorum eins og bræður. Og ég segi það opinberlega, sama hversu illa það hljómar; ég mun sakna Micrunnar.

Ég lýsi hér með yfir að frá og með deginum í dag, mun árlega verða haldið minningarkvöld Micrunnar klukkan 3.30 27. desember. Sá dagur mun hér eftir verða kallaður "Myrki dagur Micrunnar"

þriðjudagur, janúar 04, 2005

Martröð á jólanótt

Það er að sjálfsögðu hneysa að ég hafi ekki skrifað neitt um þetta leikrit fyrr. Nú gæti e.t.v. einhverjum fundist ég fara of fögrum orðum um sýninguna, sérstaklega þar sem ég ber sterk tengsl til NFMH. En sama hver hefði sett þetta upp, ég hefði alltaf verið jafn hrifin (Á Herranótt átti t.d. langbestu sýnignuna í fyrra að mínu mati og ég stend enn fast á því). En nóg um það, hefst hér lofsöngurinn.

Ég fullyrði að þetta sé ein besta uppsetning NFMH í langan tíma sem og ein besta menntaskólauppsetning í enn lengri tíma. Allir leikendur í minnstu sem og stærstu hlutverk, standa sig með einstakri prýði. Þó verð ég sérstaklega að hrósa Halla sem er svo magnaður að ég var gjörsamlega orðlaus, með gæsahúð og slefandi. Hrellir, Skellir og Hryllir eru líka ótrúlega vel leikin. Ég gæti reyndað haldið áfram að hrósa hverjum og einum en eitt það skemmtilegasta við sýninguna er það hvað allir fá að njóta sín með sinn eigin karakter, sama hversu veigamikið hlutverkið er. Hljómsveitin er frábær og allur söngflutningur til fyrirmyndar, miklu miklu betri en ég bjóst við (og ég bjóst alls ekki við neinu slæmu). Búningarnir eru ótrúlega vel gerðir sem og öll leikmyndin. Lýsingin er á köflum mögnuð og nær að skapa stemmningu sem á vel við. Litlu skemmtilegu lausnirnar eru frábærar eins og t.d. hundurinn hans Jóa og Ljótikallinn á bakvið tunglið.
Að sjálfsögðu er örugglega eitthvað sem ég gæti sagt neikvætt en ég man ekki neitt því þetta var svo frábær sýning.

Ég mæli hjartanlega með því að allir leggi leið sína niður í Loftkastala og sjái þessa frábæru sýningu. NFMH má virkilega vera stolt af þessu. Ég er allavega voðalega stolt fyrir þeirra hönd.

sunnudagur, janúar 02, 2005

Formlegar heillaóskir

Ég óska lesendum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þakka stundirnar á árinu sem eru að líða.

Viðbjóðspælingin um litlu horstelpuna

Ég er að deyja úr kvefi. Ég snýti mér að meðaltali 15 sinnum á klukkutíma og þarf alltaf að snýta mér þegar ég er nýbúin að snýta mér. Ég nefndi þetta við Karól áðan þar sem við sátum í heita pottinum og hugguð okkur. Og hún sagði að ég væri lítil horstelpa. Þá fórum við að spá, hvað ef ég væri nú full af hori að innan. Svo myndi ég kannski snýta mér og þá myndi lappirnar á mér fara að hverfa. Og ég myndi snýta mér svo ótrúlega mikið að á endanum væri ég búin að snýta mér út um nefið á mér og væri bara skinnpjatla af líkama á röngunni. Ég gæti t.d. ekki farið í heitan pott því að ég myndi bara leysast upp að innan og fljóta um. Það væri frekar nasty dæmi. Þá er viðbjóðspælingunni lokið. Hverjum fannst hún viðbjóðsleg?

Plús og mínus listi yfir árið 2004 er í bígerð.

sunnudagur, desember 26, 2004

�<�b�>�N�ök�k�v�i� �P�á�l�l�<�/�b�>�
�
�S�y�s�t�i�r� �m�ín� �o�g� �h�e�n�n�a�r� �f�a�m�i�l�ía� �(�s�e�m� �s�a�m�a�n�s�t�e�n�d�u�r� �a�f� �h�e�n�n�i�,� �k�ær�a�s�t�a�n�u�m� �o�g� �b�a�r�n�i�n�u�;� �N�ö�k�k�v�a�)� �e�r�u� �h�e�i�m�i�l�i�s�l�a�u�s� �y�f�i�r� �j�ó�l�i�n� �o�g� �h�a�f�a� �því� �f�l�u�t�t� �i�n�n� �t�i�l� �o�k�k�a�r� �á� �m�e�ð�a�n�.� �N�ö�k�k�v�i� �(�æt�l�a�ð�i� �f�y�r�s�t� �a�ð� �k�a�l�l�a� �h�a�n�n� �k�r�a�k�k�a�n�n� �e�n� �v�i�s�s�i� �a�ð� �þ�a�ð� �m�y�n�d�i� �e�k�k�i� �f�a�l�l�a� �í� �g�óð�a�n� �j�a�r�ð�v�e�g� �h�j�á� �f�o�r�e�l�d�r�um� �h�a�n�s�)� �h�e�f�u�r� �f�a�r�i�ð� �á� �k�o�s�t�u�m� �á� �m�i�l�l�i� þess sem hann rífur í hárið á mér, öskrar á mig, klórar mig og fer að væla þegar ég tala við hann.

Um daginn stóð hann og reif allt sem hann gat upp úr íþróttatöskunni minni. Að vanda var enginn að fylgjast með honum (enda erum við eingöngu fimm fullorðin hér á heimilinu og engan vegin fær um að fylgjast með 18 mánaða gömlu barni). Mömmu verður litið til hans og ferð að undrast hvað hann er að leika sér með. Í annari hendinni heldur hann á einhverjum pakka sem hann hristir af mikilli ákefð og í hinni einhverju sem hann er að japla á. Hann hafði þá fundið sér pakka að túrtöppum sem hann var hæstánægður með. Hló og skríkti.
�
Á� �a�ð�f�a�n�g�a�d�a�g� �t�r�y�l�l�i�s�t� �N�ö�k�k�v�i� �s�v�o� �e�n�d�a�n�l�e�g�a�.� �H�a�n�n� �v�i�l�d�i� �e�k�k�i� �s�j�á �j�ó�l�a�m�a�t�i�n�n� �f�y�r�i�r� �u�t�a�n� �a�ð� �l�e�i�k�a� �s�é�r� �m�e�ð� �m�ö�n�d�l�u�g�r�a�u�t�i�n�n� móður sinnar. Hann hélt að allir pakkarnir væru hundar og dróg þá á eftir sér út um allt. Hann fór að væla þegar pakkarnir voru opnaðir og vildi aðallega berja matarstell sem foreldrar hans fengi í jólagjöd. Að lokum gekk hann inn í risastóra hrúgu af gjafapappír og hringsérist þar í dágóðan tíma. Svo reif hann allt upp úr ruslapokunum. Mér skilst svo að hann hafi í gær farið í inní ískáp hjá hinum ömmu og afa, náð sér þar í bjór og rölt með hann út um allt hús.

Samt er hann voðalega sætur.

Uppáhaldsjólagjöfin í ár: Justin Timerberlake kareoke DVD diskur! I'm lovin' it!

mánudagur, desember 20, 2004

Vei!

Hér ríkir mikil hamingja. Ég á nú flugmiða. Allnokkra m.a.s. Það er því hér með gert opinbert að ég mun fara af landi brott 14. janúar 2005 og snúa aftur (vonandi) 13. maí 2005. Þá verð ég súkkulaðibrún á lit sökum útiveru og ævintýra í Brasilíu.

Hamingjuóskir vel þegnar. Blóm afþökkuð en bent á ferðasjóð.

fimmtudagur, desember 16, 2004

What a day..

Lífið bara frekar nice (donkey). Vinnurnar eru allar frábærar, peningurinn streymir inn, Brasilía í augsýn, farin að mynda aftur af alvöru, jólin að koma, svo gott sem búin að kaupa jólagjafirnar, Karól mín að koma heim og Ragnheiður B, keypti nýja Tenderfootdiskinn sem er frábær, gisti hjá Björgu sem var frábært, gerði góðverk í dag (skráði mig í Heimsforeldra hjá UNICEF), búin að finna frábært sjálfboðaliðaprógram í Brasilíu, er að fara til Danmerkur í janúar (og Brasilíu þar á eftir ofcourse), sé fram á góð jól með pottaferðum og bjór með Królu, afslappelsi og bókum. Lífið brosir við mér.

Svo steig ég í ælu...

Til að fyrirbyggja allan misskilning þá steig í ég alvöru í ælu. Það er það fúlasta sem gerst hefur síðustu vikurnar

miðvikudagur, desember 08, 2004

Trylltir tímar
Hljómar óneitanlega eins og unglingabók eftir Þorgrím Þráinsson

Það tekur víst meiri tíma en ég áætlaði að vera í fjórum vinnum. Tryllt að gera, en það er bara betra. Svo þarf maður auðvitað reglulega að syngja með sinfó og svona sem tekur líka sinn tíma. Erfitt að vera eftirsótt. Um helgina var ég að vinna á skemmtistað (vinnu fjögur) og dyraverðirnir þurftu að bregða sér frá að leysa slagsmál. Ég stóð í hurðinni á meðan og fylltist dyravarðakomplexum og spurði alla um skilríki. Ég hleypti þessum inn; kona fædd 76, maður fæddur 75, kona fædd 70 og maður fæddur 68. Mikið vald það. Ég held reyndar að ég hafi unnið yfir mig málfarslega séð (þó að ég efist nú um að í mínu tilfelli sé það hægt).

Í Pennanum, að hringja í Eymundsson í Kringlunni
Ragnheiður: "Já hæ, ég er að hringja frá Kringlunni í Smáralind"

Í Pennanum, of utan við mig til þess að lesa upphæðina sem viðskiptavinurinn á að greiða, 98 krónur. Segi þess vegna síðustu tölu.
Ragnheiður: "7.598 krónur
Viðskiptavinur: ".... ha?"

Á Lækjarbrekku, að redda einhverju steikingarrugli fyrir ameríkana. Hef ekki tíma til að tala og ákveð því að tala bara mitt eigið mál
Viðskiptavinurinn: "Thank you so much. This is just perfect. Wonderful.
Ragnheiður: "Nb roglsmen" (átti að vera "No problem")

Í Pennanum að afgreiða mann sem vill nótu. Fyrir aftan mig eru samstarfsmenn að ræða um hver vill fara í mat
Ragnheiður: "Viltu fara í mat?"
Maður: "Vil ég fara í mat?"
Ragnheiður: "Ha já... nei ég meina, viltu kennitölu á nótuna?"

Annars er spurning dagsins þessi: Grænland tilheyrir Danmörku sem er landafræðilega staðsett á svæði "65 króna frímerki". En grænland sjálft er landafræðilega staðsett utan Evrópu, "90 króna frímerki" svæðinu.Hvernig frímerki á að setja á bréf sem fara til Grænlands? (Ég veit ekki svarið sjálf)

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Af nýrri vinnu

Ég hef hafið dagvinnu. og ég er að reyna að finna upp eitthvað númerasystem á þessar þrjár - fjórar vinnur mínar, vinna eitt, vinna tvö o.s.frv. En dagvinnan er í bókabúð og er frábær. Ég er að líma allan daginn og raða í hillur á milli þess sem ég brosi og er sæt.

Mamma og dóttir í barnabókardeildinni. Af einhverjum ástæðum vill mamman ekki kaupa bók heldur vídjóspólu handa stelpunni, en hún vill frekar bókina Amma og þjófurinn á safninu.

Dóttirin: "En mamma, mig langar ekkert í vídjóspólu. Mig langar í þessa bók"
Mamman: "Nei, það eru að koma jól. Þú mátt fá vídjóspóluna"
Dóttirin: "En mamma, þessi bók fjallar um að leysa vandamál og það er ótrúlega gott fyrir mig að lesa hana. Ég ætla nefnilega að verða lögregla þegar ég verð stór!"