fimmtudagur, janúar 31, 2008

Einn lítill greiði

Vegna yfirvofandi kjarabaráttu vantar mig hjálp frá ykkur sem hafið komið og dansað hjá mér um helgar. Mig vantar umsögn um hversu skemmtilegt er á Kofanum þegar ég er að spila. Ef þú gætir hjálpað mér með þetta sendu mér endilega stutta klausu í kommentum eða á maisol[punktur]sings[hjá]gmail[punktur]com ásamt fullu nafni og símanúmeri.

Mað fyrirfram hjartanlega mikilli þökk!

fimmtudagur, janúar 24, 2008

Update

Er i elskulegri Kongsins. Einhvern vegin minnti mig ad hjer ætti jeg bara u.t.b. thrja pappakassa og eina tøsku en thad var mjøg rangt. Thad var kannski einn thridji af øllu. Er einhver i Kongsins sem vill fa allskonar frikeypis dot, nytsamlegt, onytsamlegt og skemmtilegt?

Annars er hun fyndin, hun Reykjavik.

laugardagur, janúar 19, 2008

Best of the Worst
Þá í pikkup-línum, ekki tónlist

"Þú ert jafn fögur og humarinn minn" er klárlega með verri pikkup-línum sem ég hef fengið. En það er alltaf hægt að gera betur..

Maður: "Jæja, ætlar þú ekki að ríða í kvöld?"
Ragnheiður: "Nei takk. Ég er góð"
Maður: "Hey bíddu, lékst þú ekki í Dalalíf?"

föstudagur, janúar 18, 2008

Af gælunöfnum

Margir hafa haft orð á því, fyrir framan bak og aftan, hvað sé eigilega málið með þetta nafn, Maísól. Mér finnst þó skemmtilegt þegar fólk spyr í hæðnistóni hvort að við vinkonurnar séum að reyna að taka upp listamannsnöfn og vera öðruvísi með því að kalla hvor aðra Kakó, Maísól, Lólu eða Clooney. Svo er þó ekki. Mér er samt slétt sama hvað fólki finnst enda þykir mér óskaplega vænt um nafnið og þegar fólk kallar mig Maísól. Og afhverju ég er kölluð Maísól er löng saga en upphaflega átti ég að heita Maísól. Svo í stað þess að gleyma nafninu alveg hefur þetta verið sparinafn sem mamma og pabbi hafa kallað mig.

Í gegnum tíðina hef ég verið kölluð eitt og annað. Þó oftast bara Ragnheiður, enda liggur blátt bann við því að kalla mig Röggu. Það er sökum móður minnar, en hún vildi aldrei nokkur tíman að ég yrði kölluð Ragga og predikaði svo heitt yfir mér í barnæsku, að það er skorið í stein í hausnum á mér. Ég sé rautt þegar fólk slysast til þess að kalla mig Röggu.

Frá 9 ára aldri og fram að jólum á fyrsta árinu mínu í MH var ég stundum kölluð Adda eða Adda Padda. Sumarið þegar ég var 9 ára var ég í sumarbúðum á Úlfljótsvatni og einn leiðbeinandinn byrjaði að kalla mig Öddu, því hvert sem ég fór fylgdi mér ein Öddubók. Jafnvel þegar við fórum í heilsdagsgöngu og vatnasafarí. Tveimur árum síðar fór ég í sumarbúðir í Finnlandi (já, ég var nördabarn sem fór oft í sumarbúðir). Þar uppgötaði ég að enginn í heiminum gæti sagt Ragnheiður væri hann ekki Íslendingur. Og þarna stóð ég, í miðjum nafnahring með u.þ.b. 70 börn, starandi á mig í dauðaþögn og þurfti á öfráum sekúndum að finna mér gælunafn. Það eina sem mér datt í hug var Adda. Ekki man ég tilurð þess að skyndilega voru flest allir farnir að kalla mig Öddu. En líkt og Öddunafnið festist skyndilega við mig, skipti ég á einni nóttu um skoðun. Væntanlega hefur hlaupið í mig gelgja en engu að síður daginn mætti ég í skólann einn morguninn og var þá hætt að vera Adda og tók því mjög illa ef einhver, sem ekki vissi af þessari skyndilegu nafnabreytingum, kallaði mig í sakleysi sínu Öddu. Ég heiti Ragnheiður og þess vegna átti bara að kalla mig Ragnheiði. Öddunafnið var þó ekki með öllu horfið, en í Brasilíu var ég alltaf kölluð Ada (og Ada Tyler, þyrfti ég að heita fullu nafni. Þá var ég oftast að þyjkast vera systir Liv Tyler.. sem gekk alltaf).

Í frumsýningarpartýi LFMH 2002 bættist Ragga Plögg svo við. Ég og Skúli, sem var bassaleikari í hljómsveitinni, vorum að sækja okkur mjöð í poka undir stiga og Skúli sagði "Já, þú ert þessi Ragga Plögg". Svo lék hann kló og rafmagnstengi með puttunum. Og síðan var ég kölluð Ragga Plögg (Það var leyfilegt að kalla mig Röggu Plögg því að þá stóð Röggu nafnið ekki eitt. Og það semi-stuðlaði svo skemmtilega). Þá var ég líka "the woman with the connections" svo að það hæfði mér s.s. vel.

Í vinnunni er ég stundum kölluð Rannsý eða Rannsína Rúsína. Ég kann því þó engin skil en held að Lalli hafi töfrað það fram í sumar. Unglingarnir vita þó betur en svo að kalla mig Röggu fyrir framan mig eða móður mína. Og þar sem unglingar eru svo gjarnir á gælunöfn (bara því að þeir eru svo latir og nenna ekki að segja allt nafnið) þá þykir mér Rannsý skárra en Ragga.

Eftir að ég flutti til Kóngsins hef ég verið kölluð Maísól að staðaldri af mörgum mætum. Það hefði væntanlega verið rökréttast frá upphafi að kalla mig Maísól en ekki Öddu, Röggu Plögg eða Rannsý, því frá því ég man eftir mér var ég alltaf bitur yfir því að mamma og pabbi hafi hætt við á síðustu stundu að skíra mig Maísól. Ég hef líka alltaf ætlað að taka Maísól upp sem millinafn, en líkt og fleirum gengur mér eitthvað illa að eiga í samskiptum við þessa blessuðu tölvu Mannanafnanefndar. En sama hvað Mannanafnanefnd, vegabréfið mitt eða einhver annar segir, þá er ég Maísól, þó svo að ég sé líka Ragnheiður. Og Adda og Ragga Plögg í fortíðinni. Og Rannsína Rúsína á tíðum. Skál fyrir því.

miðvikudagur, janúar 16, 2008

Í strætó

Unglingur eitt: "Ég var sko einu sinni í geðveikri rokkhljómsveit. En síðan voru vinir mínir bara of lélegir til að spila með mér"
Unglingur tvö: "Já ok. Töff. Vinir mínir voru í rokkhljómsveit og eitt sumarið þá voru þeir ekkert að vinna í unglingavinnunni heldur voru bara í einhverjum skúr að spila allt sumarið. Síðan var allt í einu farin að koma rosa reykelsislykt og eitthvað."
Unglingur eitt: "Reykelsis? Sko ef maður ætlar að vera í rokkhljómsveit þá verður maður að reykja gras. Eða þúst, allavega þykjast gera það!"

sunnudagur, janúar 06, 2008

Já, jólin. Til hamingju með þau. Og þarna, æ þetta 2008 dæmi.