þriðjudagur, janúar 24, 2006

Ég get ekki sofið. Ég fékk mér kvöldgöngutúr áðan og þar sem ég gekk niður óupplýstan göngustíg mundi ég skyndilega hvað mér fannst alltaf gaman að spila á sílafón þegar ég var að læra á slagverk. Og núna get ég einfaldlega ekki hugsað um annað en hvað mig langar óstjórnlega mikið í sílafón og um alla þá undraverðu hluti sem að ég ætla að gera þegar ég eignast sílfóninn.


Ég ætla að verða eins og þessi, nema bara betri

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Ástin, ég er að koma heim ástin

Og svo bara rétt sísvona, í hádeginu á þriðjudaginn, þar sem ég sat og naut lattebollans míns, varð ég ástfanginn. Myndbandið hér greip mig og ég féll kylliflöt. Nú þarf ég bara að vinna í því að verða lesbía..

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Hallelúja baby!

Yfirkonan mín var algjörlega í skýjunum eftir messuna til stuðnings samkynhneigðun í Fríkirkjunni á sunnudaginn. Hún talaði í sífellu um að henni hefði liðið svo vel í kirkjunni, andinn hefði verið svo góður og skemmtiatriðin alveg frábær. Ég sá fyrir mér að Nylon hefði komið og tekið einhvern sálm í nýrri poppaðri útgáfu og með í för hefði verið heill her af freestyle-dönsurum, einhver grínari (t.d. Pétur Jóhann eða Sveppi) hefði verið með semi-metnaðarfullt stand-up um stöðu samkynhneigðra innan kirkjunnar og undir lokin hefði Pétur Pókus komið og breytt vatni í vín og prestinum í hommsu í smá stund.

En nei, þá voru þetta bara einhver púkó söngatriði. Greinilegt að það ætti að ráða mig sem PR hjá einhverri kirkjunni. Ég væri búin að frelsa hálft landið á svipstundu.

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Á þessu ári ælta ég að..

.. eignast pastelbláan krumupuíþróttagalla
.. fara á djammið í snjógalla (eða krumpugallanum)
.. hitta einhvern núverandi eða fyrrverandi ólypmíumeistara í borðtennis
.. láta vaxa á mig aukatá á hægrilöpp
.. hætta að borða hor
.. eignast fjögur fullvaxta börn, með tveggja mánaða millibili
.. fá Nóvelsverðlaunin

Áramótaheiti eru crap

mánudagur, janúar 02, 2006

Persónulegur annáll Ragnheiðar árið 2005

Eins og ég sagði í ákaflega góðmennu teiti á gamlárskvöld, ég lít á árið 2005 sem tvö ár. 2005-a sem er sá hluti ársins sem ég bjó í Brasilíu og 2005-b, sá hluti ársins eftir að ég kom heim. Engu að síður ætla ég að reyna að sjóða þessu saman í einn annál.

Afrek ársins
Þessi flokkur gæti líka kallast stolt árins, The best of the year, Lífsreynslan o.s.frv. Brasilía, Brasilía. Ég fór ein og ég sigraði heiminn. Húrra fyrir mér.



Verstu fréttirnar
Á þessu ári missti ég bæði afa minn og ömmu. Þau voru bæði yndisleg, gáfu mér óteljandi margt og ég sakna þeirra voðalega.

Fallegasta andartakið
Þau hafa verið ansi mörg á þessu ári. Dansandi í rigningunni í Río, horfa á sólarupprás á Ipanema, öll litlu andartökin með uppáhaldsfólkinu mínu. En að snorkla innan um mörg hundruð litla kóralfiska, glitrandi í sólinni í nokkrar mínútur verður alltaf eitt af þessum andartökum sem ég efast um að hafi í alvöru átt sér stað.

Ótrúlegasta upplifun
Sigurrós í nóvemeber. Það er ekki hægt að flokka þetta sem tónleika. Þetta var svo miklu miklu meira.

Ungbarn ársins
Ásta Skúladóttir, elsku litla ljósið.

Orð ársins
Þó svo að grína gæti allt eins verið orð árins, þá held ég að smána hampi sigri þetta árið. Smána sig. Smáni smáni.



Ríma ársins
Allir áttu foreldra nema Urður, hún var útburður.

Drykkur ársins
Grænn kristall plús, latte og bjór voru vafalaust mest drukknir á árinu. En líkt og Svanhvít segir. Caipirinha er og verður drykkurinn. Ég býð til Caipirinha teitis bráðlega.

Vefsíða ársins
MySpace. Hvernig er hægt að verða háður heimasíðu?

Skópör ársins
Skósafnið stækkaði og dafnaði um 15 pör á árinu. Þar á meðal þetta par.



Súrrealískasta mómentið
Ég vitna orðrétt í bloggið mitt, fimmtudaginn 28. apríl 2005

Ragnheidur: "Já, og hvad aetlaru svo ad vera lengi í Brasilíu?"
Ítalinn: "Einn og hálfan dag
Ragnheidur: "Ha? Afhverju svona stutt"
Tad ber ad taka frama d Santarém er úr leid og tad tekur svo gott sem tvo daga ad komast tangad frá Ítalíu
Ítalinn: "Já ég veit, tetta er svolítid klikkad, en ég kom hingad til ad fagna med vinum mínum"
Ragnheidur: "Já já, fagna hverju?"
Ítalinn: "Aei tad var verid ad kjósa mig umhverfisrádherra Ítalíu"

Farartæki ársins
Birdie, elskulega vespan okkar.

Fyndnasta myndin
Æ ég veit ekki. Ég fer bara alltaf að hlægja.




Matur ársins
Kjúklingur, matreiddur á hvaða hátt sem er. Kjúklingasalat, marineraður kjúklingur, kjúklingasamloka, grillaður kjúklingur, steiktur, heitur, kaldur.. allt nema hrár. Á næsti ári verður það væntanlega sushi.

Fylgihlutur ársins
Gilmmer og gleraugu. Án nokkurs vafa.



Tónleikar ársins
Það er ekki hægt að velja eina, svo að ég ætla að nefna sex (í engri sérstkari röð).
- Gus Gus, Airwaves. Þau eru roooosaelg
- Franz Ferdinand, Kaplakrika. Cool, as always.
- Hamrahlíðarkórinn, St. Paul's Basilica. Við vorum ótrúleg.
- Lenny Kravitz, Copacabanaströnd. Lenny er ekki í uppáhaldi. En upplifunin var rosaleg.
- Daníel Ágúst, Ariwaves og Íslensku Óperunni. Ég get ekki gert upp á milli.
- Ratatat, Airwaves. I've been rapping for about 17 years...

Bíómynd ársins
Me and You and Everyone We Know

Mitt uppáhaldsfólk
Það er af svo ótrúlega mörgu að taka. En ég nefni bara eina stelpu og einn strák því að þau eru bæði ótrúleg og svo góð.



Já, allt í allt ,virkilega gott ár. Væntanlega með þeim eftirminnilegri. Það er þó gulltryggt að 2005-a mun seint eða aldrei gleymast.