mánudagur, desember 20, 2004

Vei!

Hér ríkir mikil hamingja. Ég á nú flugmiða. Allnokkra m.a.s. Það er því hér með gert opinbert að ég mun fara af landi brott 14. janúar 2005 og snúa aftur (vonandi) 13. maí 2005. Þá verð ég súkkulaðibrún á lit sökum útiveru og ævintýra í Brasilíu.

Hamingjuóskir vel þegnar. Blóm afþökkuð en bent á ferðasjóð.

0 ummæli: