þriðjudagur, júní 24, 2003

Ég veit eiginlega ekki hversvegna ég er að blogga, ég er í svo miklu sjokki. Og þið viljið vafalaust fá að vita hvers vegna...
Í nótt, klukkan hálf tvö kom ég heim úr vinnunni. Eithvað þótti mér ljósið í forstofunni undarlegt en opna þó dyrnar engu að síður. Þá sé ég hvar allt stendur í ljósum logum, stofan og eldhúsið. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera en hleyp hringinn í kringum húsið og ber á glugga foreldra minna til þess að vekja þau og hringi svo í 112. Slökkvuliðið kemur og lögreglan einnig og eru skýrslur teknar, teppi afhent o.s.frv. Að sjálfsögðu var ekki hægt að sofa í íbúðinni og þurftum við því að leita á náðar systur minnar í nótt. Hér sit ég nú, í hennar tölvu, og hef nýlega fengið þær fregnir að allt sem í stofunni og eldhúsinu eyðilagðist algjörlega og eitthvað af svefnherbergis ganginum einnig. Þess vegna situr fjölskyldan nú uppi nánast allslaus. Nú hafa vinir og vandamenn stofnað reikning þar sem tekið verður við fjárframlögum.

Bankareikningur: 1163-05-490593
Kennitala: 250583-5759

Þar sem að foreldrar mínir hafa mjög sérstakan smekk þá afþökkum við allar gjafir sem ekki eru í formi peninga. Jæja, ég verð að fara niður á lögreglustöð.

This story and all events are fictional. No actors or persons were harmed during the making of this story. This story is only published to try and trick you into donating money to the poor student who owns this site and wants to buy a new camera, study photographing and travel to Asia. Copyright by Ragenhaud Corporation

0 ummæli: