miðvikudagur, júní 04, 2003

Ragnheiður B og móðir mín eru efstar í egóbúst keppninni. Móðir mín hefur þegar gefið mér
    ... rauðu skóna í Kron
    ... fullt af fötum
    ... pjéning

Ragnheiður B er þó einu skrefi framar því að hún hefur gefið mér
    ... einthvað sem er ekki neitt og er gjörsamlega ónothæft
    ... bók í bókahilluna sem fær fólk til að halda að ég sé ofurgáfuð (það var rússneska svindlbókin um Harry Potter stelpuna, á rússnesku!)
    ... skemmtilega mynd af bjöllu bíl í Tékklandi

Björg er að sjálfsögðu ofarlega á listanum því að hún gaf mér svo mikið af ótrúlegasta dóti í heimi sem er svo ótrúlega flott og ég barasta elska.
Ég er farin í bankann áður en handrukkarar verða sendir til fráfarandi gjaldkera LFMH 2002-2003. Já og þetta blessaða barn ætlar aldrei að koma. Aumingja systir mín verður bara að vera tvær manneskjur það sem eftir lifir ævinnar!

0 ummæli: